Reisa
Í vetrarfríi lögðum við Kjartan upp í mikla reisu. Tilgangurinn var að komast frá Lille til Árósa að hitta nýju frænku mína hana Eyju og foreldra hennar. Leiðin frá Lille til Árósa er hreint ekki bein og greið og eftir miklar og djúpar ferðapælingar var loks ákveðið að fara þangað með lest. Þegar upp var staðið varð þessi ferð að mikilli reisu í gegnum 5 lönd með lest, rútu, flugi, bílferð og bát. Lögðum upp eldsnemma frá Lille á fimmtudegi til að ná lest til Tournai í Belgíu og þaðan til Brussel og þaðan til Kölnar í Þýskalandi.
Hluti farmiða ferðarinnar og reisubókin...
Belgíska lestin sem bar okkur til Þýskalands var bleik, sem var ekki leiðinlegt.
Undurfagrir mósaíkgluggar í kirkjunni og ekki hægt að skoða hana á betri degi því sólin skein í gegnum þá. Eiginlega ekki skrítið að fólk hafi trúað í blindni á guðdóminn á miðöldum þegar það gekk inn í svona brjálæðislegar byggingar...
Dómkirkjan lítur mest út einsog fjall frá þessu sjónarhorni (þarna lá ég reyndar nánast á götunni og faðmaði jörðina eftir að hafa verið þarna uppi í háloftunum).
Kvöld í Köln og Rínarfljót.

sáum dómkirkjuna þar í borg
og þennan hérna danska,
fórum á kaffihús með fallegum bollum sem mér fannst ákaflega Kristínar Lilju-legir,
Í Árósum hittum við líka Arngrím Vídalín útá götu og drukkum með honum danskan fadöl (ég reyndar þekkti varla þann skeggjaða mann sem vék sér að mér þarna á götunni og ruglaði honum andartak við skógarhöggsmann, en af honum náði ég engri mynd), spókuðum okkur í fallegum skandinövskum búðum sem bjóða uppá fegurri klæðnað en franskar búðir og höfðum það gott. Dásemd að vera í Danmörku! Frá Árósum lá svo leið í rútu til Billund og flugvél til London, til að komast aftur heim til Lille. Þar sem við gátum fengið far frá London til Lille daginn eftir ákváðum við að eyða smá tíma þar.
Eignaðist þennan, sem kallast Beat-hoven, sem og mína fyrstu saumavél í London. Í baksýn er annar ferðafélagi, Greifinn af Monte Cristo, sem stytti stundirnar á ferðalögunum. Frábærir.
Sjálfsmynd í Hyde Park.
Eldsnemma morguns í Köln tók ég heimapróf um leiðinlega þýska heimspekinga, viðeigandi. Þegar því lauk hlupum við út á lestarstöð þar sem næsti áfangi ferðarinnar hófst - lestarferð yfir þvert og endilangt Þýskaland. Frá Köln fórum við til Münster og þaðan til Osnabrück og þaðan til Bremen og þaðan til Hamburg og þaðan til Flensburg og þaðan yfir í danska lest til Fredricia og þaðan til Árósa, þangað sem við komum á föstudagskvöldi og á móti okkur tók hin yndislega Eyja.

Eftir skemmtiferð í London héldum við á fund þeirra Ludo og Francois, Frakka sem við fundum á franskri carpool síðu og voru á leið til Lille. Þeir voru ákaflega huggulegir, og annar þeirra lögga svo við vorum í góðum höndum þrátt fyrir að þeir brunuðu mjög svo hratt í gegnum rigningu og þoku. Leiðin lá til Dover, upp í enska ferju og toppaðist þar með fjöldi ferðamáta í þessari reisu, komum að landi í Calais, þaðan keyrðum við heim til Ludo í Houterkirk og Francois skutlaði okkur svo heim til Lille. Frábær ferð - og það sem stendur algjörlega uppúr var að kynnast litlu yndislegu frænku minni...

9 aths.:
Elsku Hjördís Alda mín. Takk fyrir þessa skemmtilegu ferðasögu og flottu myndir. Lokaorðin hrifu mig beint í hjartastað. Mor
Skemmtileg ferðasaga! Ég held raunar að Gummi bróðir þinn hafi náð af mér mynd inni á Café Jorden.
En nú er hárið farið. Skeggið fer þegar hlýnar í veðri.
Breyttist þú í villimann úti í hinum stóra heimi, Arngrímur? Kv. Rósa
Ó en falleg æðislega skemmtileg og falleg ferðasaga. Sakna ykkar allra alveg afskaplega mikið og hlakka til að sjá ykkur hvert af öðru í vor!
Kveðja, Auður
YNDISLEG ferðasaga..
Frábær alveg hreint.
Og flottar myndir :*
Það finnst pabba mínum amk, Rósa. Hann líkti mér við útilegumann um daginn :)
Mega næsingur, þetta hefur verið þvílíkt flakk! gaman að heyra að allt gekk samt vel! Bkv. Hinrik Örn
Þvílíkt ferðalag og skemmtilegar myndir! Bleik lestarsæti, dómkirkja, Eyja, íkorni...
Gaman að fylgjast með ævintýrum ykkar! Hafið það sem allra best :)
Mig langar í nýtt blogg kæra vinkona!!
Sendu inn athugasemd
<< Forsíða