La ville de Lille
Ég held að heimþráarþröskuldurinn sé mun lægri þegar maður er aleinn og þekkir engan og hefur skilið ástina sína eftir heima. Allavega er ég búin að fara allan skalann í einmanaleika og heimþrá. Í dag, sem tæknilega er bara 4. dagur að heiman og sá 3. í Lille, fór ég í IKEA og fannst ég vera komin heim. Ótrúlegt að IKEA-graflaxssósa og IKEA-glös vekji með manni heimþráarnostalgíu, og ég sem hef rétt svo stigið litlu tá á sænska grund. En ég er líka glöð að vera komin hingað til að láta ákveðna drauma rætast.
Ferðalagið byrjaði í Brussel þar sem ég var í uþb 15 klst og þar af svona 14 inná hótelherbergi. Lærði það eitt að Brusselbúar virðast góðir í flokkun rusls:
Ef til vill fer ég þó aftur til Brussel og kynnist henni betur, enda bara í hálftíma fjarlægð frá Lille. Hér bý ég á stúdentagarði í svefnherbergi með ískáp og eldavélarhellu oná. Þegar ég kom í herbergið var það afar óhreint, rúmdýnan aðeins svampur og allt fremur óspennandi. Fyrsta verk var auðvitað að skúra, skrúbba og bóna (þegar ég fann loks súpermarkað þ.e.a.s., ótrúlegt hvað einföldustu hlutir geta orðið manni flóknir á splunkunýjum stað). Eftir Carrefour- og Ikeaferðir er herbergið eiginlega orðin afar hugguleg vistarvera verð ég að segja.
fyrir
Í dag lagist ég í skoðunarleiðangur um borgina. Fór upp í beffroi við ráðhúsið sem er rúmlega 100 metra hár turn með útsýni yfir allan bæinn. Mér skylst að sjónvarpssendingar frá þessum turni hafi gert fyrstu Júróvísjonútsendinguna mögulega! Í ráðhúsinu ku svo vera salur með verkum Erró, sem ég gerði mikla leit að en fann ekki. Það verður mission til síðari tíma.
Hinn reisulegi Beffroi
Borgin er afar falleg og mér til mikillar gleði er hér að finna H&M, uppáhaldsbúðina vissulega. Gat þó haldið aftur af miklum kaupum, fékk mér bara forláta regnhlíf sem virðist vera talsverð þörf fyrir á þessum slóðum. Hér virðist vera hið síbreytilega verður í íslenskum anda, það skiptist á með skin og skúrum, einsog hjá mér sjálfri.
Lille lofar mjög góðu, og skólinn líka. Hann byrjar reyndar ekki alveg strax, nú tekur við val á kúrsum og ég er jafnvel að hugsa um að taka kúrs í kórstjórn.
Sjálfsmynd á torgi í rigningu rétt áður en ég rammvilltist. Kúlan á enninu er ekki risabóla heldur moskítóbit. Þær elska mig.
Þar sem nú er komin nótt í Lille sendi ég bisous þangað til næst!

4 aths.:
Skemmtilegt að lesa ferðasöguna og greinilega í ýmsu að snúast enda ertu að skapa þér heimili til heils árs. Kórstjórn hljómar vel, þú setur kannski á laggirnar fjölskyldukór þegar þú kemur heim. Bestu kveðjur frá mömmu.
Er búin að setja bloggið þitt í favourite. Hlakka til að heyra ævintýrasögur.
Kórstjórnina verður þú að taka. Hlakka þá til að heyra fjölskyldukórinn í framtíðinni ;)
á bientot
Marit
Líst vel á þig og ævintýri þín mín kæra.
pabbi
thanks for your sharing! great helpful!!!Thank you
Louboutin Shoes
Christian Louboutin Shoes
Christian Louboutin Pumps
louboutin
Christian Louboutin Boots
Christian Louboutin Pumps
Christian Louboutin Heels
Christian Louboutin Sandal
Pigalle Christian Louboutin
fur boots
christian louboutin fur boots
louboutin pumps
louboutin fur boots
coyote fur boots
christian louboutin heels
silver strappy sandals
christian louboutin toundra
loubitan studded bow peep
Wedding Dress Shops
vintage wedding dresses
wedding dresses
cheap mobile phone
Wedding Dress Shops
Wedding Dresses 2011
Wedding Dress Shops
Off the Shoulder Wedding Dresses
bridal jackets
wedding jackets
bridal jackets
halter neck wedding dresses
off the shoulder wedding dresses
vintage wedding dresses
wedding dresses with sleeves
wedding jackets for the bride
Sendu inn athugasemd
<< Forsíða