Bienvenue chez les Ch'tis

Eftir 2 vikur af spóki í Lille byrjaði skólinn loks í dag. Enn er nokkuð á reiki hvaða kúrsa ég mun taka, enda þarf ýmislegt að smella saman. Fyrst er auðvitað að finna sér kúrsa í 300 bls kennsluskránni eftir áhuga, smekk og samræmi við íslenska skólann. Svo þarf að leita uppi stundatöflur, en það hefur eiginlega verið mesta þrekvirkið enda skólinn stór og erfitt að rata um hann og stundatöflur hengdar upp eftir hentisemi. Fann til dæmis stundatöflur þriðja árs fyrir helgi en stundatöflur annars árs ekki fyrr en í morgun. Sem Erasmus nemi vel ég einmitt kúrsa af hinum ýmsu árum og úr hinum ýmsu áttum, bókmenntum, málvísindum og sögu, og þá kemur að næsta þrekvirki, að púsla öllu heila klabbinu saman. Í dag voru þrír tímar sem mig langar að fara í, allir kenndir á sama tíma. Ég valdi þann áhugaverðasta, Franskar skáldkonur. Mér lýst vel á kennarann, eða kennslukonuna, spurning hvað hún vill láta kalla sig en í tímanum ræddi hún mikið um hvað kalla skyldu kvenkyns rithöfunda - halda í hið feðraveldislega karlkynsorð auteur, eða nota autrice, auteuse, autoresse, écrivaine eða auteure (sem reyndar er borið fram alveg eins og karlkynsorðið)... Þetta er auðvitað allt spurning um kynsjaskiptan aðskilnað í tungumálinu eður ei... Annar kúrs sem ég prófaði í dag var einhvers konar saga Frakklands. Fór á tvo fyrirlestra í röð hjá sama kennara, annar var fyrir 2 ár og hinn fyrir 3 ár. Báðir litu vel út en vandræðalega þá hálf dottaði ég á þeim báðum. Ég kenni andrúmsloftinu um, enda kennarinn skemmtilegur. Nú eða skilningsleysi mínu.

Flóknasta við þessa blessuðu kúrsaleit er að flestir kúrsar sem ég tek (sem munu verða svona 5) eru samansettir af einum CM eða fyrirlestri og einu til tveimur TD sem eru minni hópar. Í dag prófaði ég sem sagt einn þriðja af báðum sögukúrsunum og einn þriðja af bókmenntakúrsinum. Þetta kúrsaval verður líklegast stærsti höfuðverkur vikunnar.

Skriffinnskan hér er yndisleg að vanda, en mér finnst hún reyndar mun minni hér en hún var í Montpellier. Það hefur ef til vill eitthvað með það að gera að þá skildi ég ekki bofs en nú skil ég þó flest. Ég ákvað að opna bankareikning í póstbankanum og það tókst eftir þrjú rendez-vous við Madame Blondel í póstbankanum. En það kom ekki að sök því fólkið þar var svo indælt og minnti mig á indæla fólkið á pósthúsinu í Bienvenue chez les Ch’tis. Á hverju rendez-vous-i þurfti ég auðvitað að segja til nafns og var beðin um að endurtaka nafnið mitt nokkrum sinnum, svona juste pour rire – bara til gamans. Aumingja Madame Blondel þurfti að ljósrita alla mína pappíra tvisvar (alltaf að ljósrita) og skrifa Hreiðarsdóttir, Hjördís Alda aftur og aftur því hún átti í tæknilegum örðugleikum meðan á þessu stóð. Ég dauðvorkenndi henni að þurfa að skrifa mitt óskiljanlega nafn og var komin á fremsta hlunn með að taka við af henni en hún vorkenndi mér svo fyrir að þurfa að bíða að ég fékk einhver mánaðargjöld af Cartebleu-inu mínu gefins.

Að öðru er allt gott að frétta, Lille er skemmtileg, svoldið köld en veðrið breytist oft og hratt eins og heima á Íslandi. Hef hitt einstaka Frakka, eitthvað af öðrum Erasmus nemum og þar á meðal þrjár afar skemmtilegar finnskar dömur. Finnar og Íslendingar eru líkari en ég hélt! Um daginn dansaði ég svo Bollywood dans sem var skemmtilega skrítið, og svo hef ég verið svolítið í því að rannsaka bari og pöbba í miðbænum með þeim finnsku.

Lífið á stúdentagarðinum venst ágætlega fyrir fordekraða íslenska konu, ísköld sturtan getur tekið á þreyttar taugar en hún hlýnar þó yfirleitt að lokum (m.ö.o. þá verður hún sjóðandi bullandi heit um leið og hún hættir að vera köld, hefur ekki líkaminn voðalega gott af svona snöggum hitabreytingum?)

Áðan fór ég og fjárfesti í Eurostarmiðum til London þangað sem ég ætla í október með mínum heittelskaða. Hef því margt að gleðjast yfir! Elska að Lille er svona miðsvæðis. Beini þessum tilmælum til þeirra sem langar að heimsækja mig, þetta er örstutt frá París, Brussel, London, allt áfangastaðir íslenskra flugfélaga! Fyrir fólk utan Íslands er Charleroi/Brussel flugvöllur skammt héðan og þangað flýgur Ryanair víða að fyrir nánast skid og ingengting!

Læt hér nokkrar myndir fylgja með til freistingar:

Farin að grúska í kennsluskránni!

|

5 aths.:

Blogger Kristin Lilja sagði...

Kannast við svona kennsluskrárbrölt. Það er ýmist of eða van. Heima eru of fáir kúrsar en í KTH er ég að drukkna úr framboði. Gangi þér rosalega vel og ég er spennt að heyra framhaldið!:)

Er líka ánægð að það gangi vel hjá þér. Er að íhuga heimsókn til þín einhverja helgina og sjá hvernig franska lífið gengur fyrir sig ;)

Svo hef ég heyrt að svona snöggar hitabreytingar séu hin mesta heilsbót. Tökum sjósundstrendið heima á Íslandi sem dæmi.. ;)
Hafðu það gott:*

5:07 PM  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Skemmtileg lýsing á brasi sem áreiðanlega er lítið skemmtilegt í raun. En mig langar rosalega á pósthúsið og upplifa stemmninguna. Kveðja, mamma

6:13 PM  
Anonymous hreidar sagði...

Ég verð nú barasta að fara að leita að ferðatöskunni. Sit við að lesa kenningar þess franska Bourdieu í félagsfræðinni. Á fullt í fangi með það eins og öll frönsku heitin í blogginu þínu.
Hafðu það sem best mín kæra.
pabbi

11:23 PM  
Blogger Hjördís Alda sagði...

Velkomin til Lille! Eða bienvenue einsog maður segir ;)

6:43 PM  
Blogger lam sagði...

thanks for your sharing! great helpful!!!Thank you
Louboutin Shoes 
Christian Louboutin Shoes
Christian Louboutin Pumps 
louboutin
Christian Louboutin Boots 
Christian Louboutin Pumps
Christian Louboutin Heels 
Christian Louboutin Sandal
Pigalle Christian Louboutin 
fur boots
christian louboutin fur boots
louboutin pumps
louboutin fur boots
coyote fur boots
christian louboutin heels
silver strappy sandals
christian louboutin toundra
loubitan studded bow peep
Wedding Dress Shops
vintage wedding dresses 
wedding dresses
cheap mobile phone
Wedding Dress Shops
Wedding Dresses 2011
Wedding Dress Shops
Off the Shoulder Wedding Dresses
bridal jackets
wedding jackets
bridal jackets
halter neck wedding dresses
off the shoulder wedding dresses
vintage wedding dresses
wedding dresses with sleeves
wedding jackets for the bride

7:50 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Forsíða

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com