10 myndir fyrir mömmu
Hef oft fyllst leiða á sunnudögum í Frakklandi þegar allt er lokað og fáir á ferli. Mér til ánægju var þessi sunnudagur ekki þannig! Kannski af því það var ljómandi gott veður, og kannski eru Lille-búar bara sérstaklega sunnudagsglatt fólk. Byrjaði sunnudaginn minn á að hlaupi og uppgötvaði þannig nýjar hliðar borgarinnar, hafði fundið leiðina út á korti áður til að rata örugglega heim og hljóp meðal annars í gegnum tvo æðislega almenningsgarða, eftir umferðargötum og svo í gegnum miðbæinn. Það voru eiginlega smá mistök, enda kannski ekkert agalega gaman að spóka sig í miðbænum á hlaupagallanum! En engu að síðar frískandi. Fór svo í skoðunarferð um bæinn til að ná betur áttum og upplifa borgina, hafði það markmið, fyrir tilstilli móðurinnar, að taka 10 myndir með afrakstri dagsins og er það hluti af sáluhjálpinni sem ég stunda til að aðlagast nýjum aðstæðum.
Eftir föndrið hófst ganga niður í miðbæinn á Place du Theatre þar sem var að finna þetta fallega Óperuhús
og skemmtilegan bókamarkað þar sem ég fann bók eftir Einar Kárason. Íslandstengingin gladdi auðvitað mitt Íslands/Íslendingssaknandi hjarta og fannst mér þetta því verðugt myndefni. Ég nenni þó ekki að lesa Einar Kárason á frönsku og keypti í staðinn enskan chick-litteratúr í franskri þýðingu, ágætis afþreying og frönskuæfing um leið.
Næsta torg við Place du Theatre er Grand Place sem sjá má hér að neðan. Þar fékk ég besta kaffibollan sem ég hef fengið síðan ég kom til Lille (farir mínar ekki alveg sléttar í kaffimálum hérna), skammast mín eiginlega fyrir að viðurkenna það en kaffið fékkst á McDo...
Í Vieux Lille - gamla bænum, voru fáir á ferli enda flest lokað og klukkan orðin margt. Sá þar þennan sæta Ch'ti gaur
Þangað til næst!
Fyrsti áfangastaður var Gare Saint Sauveur, sem er gömul lestarstöð sem hefur verið breytt í einhvers konar safn. Þar var um helgina tískuhátíð þar sem hönnuðir sýndu afrakstur sinn og hinar ýmsu vinnustofur voru í boði fyrir gesti og gangandi.
Ég stóðst ekki freistinguna og fór að föndra og bjó til þessa forláta slaufu sem er ýmist næla eða hárkraut,

4 aths.:
Takk, takk, kæra dóttir. Gott að fá innsýn í Lille í gegnum myndirnar þínar. Mamma
Yndislegt blogg og gullfallegar myndir!
Ég er svo glöð að þú ert farin að blogga aftur. Þú ert strax komin í google-readerinn minn!
Hafðu það æðislega gott þarna og ég vona að ég nái að kíkja í heimsókn til þín. Lille lítur út fyrir að vera falleg.
Utbytesstudentenshälsning från Sverige (bjó til fyrsta orðið og veit ekki hvort það sé til = skiptinemakveðja)
Kristín
Fallegar myndir Hjördís mín. Er mjög mikill fylgismaður myndablogga. :)
Þetta er svo spennandi hjá þér!
p.s. hlakka til að fá þig heim um jólin! Í huganum er ég búin að skipuleggja ýmislegt skemmtilegt til að gera saman. Læt þig vita hvað það er þegar nær dregur;)
thanks for your sharing! great helpful!!!Thank you
Louboutin Shoes
Christian Louboutin Shoes
Christian Louboutin Pumps
louboutin
Christian Louboutin Boots
Christian Louboutin Pumps
Christian Louboutin Heels
Christian Louboutin Sandal
Pigalle Christian Louboutin
fur boots
christian louboutin fur boots
louboutin pumps
louboutin fur boots
coyote fur boots
christian louboutin heels
silver strappy sandals
christian louboutin toundra
loubitan studded bow peep
Wedding Dress Shops
vintage wedding dresses
wedding dresses
cheap mobile phone
Wedding Dress Shops
Wedding Dresses 2011
Wedding Dress Shops
Off the Shoulder Wedding Dresses
bridal jackets
wedding jackets
bridal jackets
halter neck wedding dresses
off the shoulder wedding dresses
vintage wedding dresses
wedding dresses with sleeves
wedding jackets for the bride
Sendu inn athugasemd
<< Forsíða