Hatturinn
Ég fylgdi stúlkunni heim, og hún bjó bak-
dyramegin. Annað meira eða merkilegra var
það nú ekki.
Verið þér sælir, og þakka yður kærlega
fyrir fylgdina, sagði hún.
Sælar, sagði ég.
Hatturinn yðar!
Hann hefur gott af því, sagði ég, og hélt
áfram að kveðja stúlkuna.
(Jón Thoroddsen)
Sokkin í ástarsögurnar, mest erlendar, en finnst við hæfi að íslenskir ástarsögumolar fái að fljóta með. Á bókamarkaðnum í Perlunni eignaðist ég loks hina yndislegu bók "Flugur" eftir Jón Thoroddesn yngri, og langaði að leyfa þessum fallegu orðum hans að fljóta hingað.

1 aths.:
Eftir of mikla facebook notkun get ég ekki annað en sett ,,like" við þessa færslu...Segir allt sem segja þarf.
Sendu inn athugasemd
<< Forsíða