Nokkrir hlutir sem gaman væri að eiga
Þessa fallegu skó sem heita Pela Wedges frá Dolce Vita...
eða jafnvel svona brjálæðislega bleika...
Stóra og síða peysu, eins og þessa sem heitir Kirstina Cardigan og er úr Monki. Ég á mjög svipaða bleika úr Monki sem mér finnst flottari en þessi, en hún er svo yndisleg að mig langar í aðra... Svo minnir þessi á ákveðna "pabbapeysu" sem var til heima þegar ég var lítil, sú var stór, víð og sniðlaus og svo dásamlega kósý.
Buxur með svona blómamunstri. Þessar eru úr HM, ég veit ekki alveg með sniðið en munstrið er frábært!

Mig langar svo að nota oftar pils. Pils eru svo yndislegur klæðnaður. Ég hef ekki alveg náð að móta minn pils stíl í seinni tíð, en langar í alls konar... Gallapils, þröng pils, prjónuð pils (það eru til ótrúlega flott prjónuð pils í Gyllta kettinum), víð pils, sumarpils, blómapils.... Þessi tvö fann ég á Urban outfitters síðunni. Þetta með blómunum er í Urban Renewal línunni þar sem engin flík er alveg eins og allt er unnið úr gömlum flíkum og efni eða umfram efni frá einhverju öðru. Sem sagt mjög umhverfisvæn klæði.

1 aths.:
Glæsilegt allt saman! Mig langar í gráa pilsið og víðu peysuna úr Monki!!
Sendu inn athugasemd
<< Forsíða