Af klæðum

Litlu hamingjurnar urðu ekki lífseigar hér á síðunni þó að í raunveruleikanum hafi þær verið margar. Ætla í bili að skrifa um það sem mér er efst í huga, klæðaburð og prjónaskap. Ég fór um daginn til Danmerkur í brúðkaup elsku herra bróður míns og frú Katrínar. Þar í landi kynntist ég loks hinni frábæru búð MONKI, sem er nú mín nýja uppáhaldsbúð, og Weekday. Ég eignaðist einmitt frábæra stóra peysu úr Monki sem ég hef varla farið úr síðan.

Búðir einsog þessar, og síðurnar Copenhagen Street Style og Stockholm Street Style hafa aukið til muna áhuga minn á að setjast að á Norðurlöndunum!

Hef mikið verið að pæla í götulookinu undanfarið, það er hvernig hægt sé að vera bæði smart og hlýtt í einu utanhúss. Ég hef yfirleitt klætt mig í lag eftir lag af fötum á veturna, og þó ég sé mjög hrifin að svona layering, þá má öllu ofgera... Eignaðist eftir jólin tilviljanakennda litla svarta dúnúlpu sem hefur hlýjað mér vel í janúar, ég er mjög hamingjusöm með hana og hún hefur aðeins dregið úr lögunum (hana mætti telja til petits bonheurs, í mínum skilningi í það minnsta). Þessa dagana er ég einnig mjög hrifin af nokkrum vetrarlegum flíkum eins og:

-Stórum krögum / treflum. Er að gera tilraun með einn slíkan einsog stendur, grófprjónaðan úr fjórföldum plötulopa.

-Reimuðum grófum skóm eins og Dr. Martens. Ég veit ekki hvort þeir séu til á Íslandi en ég sá í dag fallega reimaða vetrarskó í Gyllta kettinum, sem gætu vel komið í staðinn.

-Húfum, eyrnaböndum og vettlingum í fallegum litum. Heimaprjónað eða prjónað úr búð. Íslenski lopinn er til í ó svo fögrum litum og mig dreymir um litríku lopapeysurnar sem mig langar að prjóna.

-Stórum hlýjum peysum.

-Fylltum hælum. Ég elska fyllta hæla.

Systir mín elskuleg benti mér svo á dásemdir gærunnar. Hlý og flott. Hún er byrjuð að klæðast einni slíkri.

|
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com