Les petites bonheurs 4

Verðlaunaði mig í dag, eftir að hafa lokið prófi í erfiðasta áfanganum, með ferð á Kaffitár í Þjóðminjasafninu og uppgötvaði þá að ég hef eiginlega ekkert gert undanfarna daga annað en að læra og taka örstuttar pásur til að stunda voyeurisma á bók smettanna og fá mér að borða.

Kryddað desemberkaffi og safnbúðin á Þjóðminjasafninu, þetta var eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert í marga marga daga. Ég elska safnbúðir, mæli sérstaklega með þessari þar sem fást svo margir fallegir hlutir og svo auðvitað safnbúðinni sem ég vinn í á Landnámssýningunni sem er frekar framúrstefnuleg og flott. Safnbúðir eru líka góðir staðir til að versla frumlegar jólagjafir, fyrir þá sem leiðist jólamannmergðin og stressið í verslunarmiðstöðvunum sem mér skylst að sé orðið mikið þó ég hafi ekki farið enn.

Á söfnunum stendur tíminn kyrr, á minjasöfnunum að minnsta kosti, og þar er ekkert stress.
|

2 aths.:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Kem og kaupi í safnbúðinni þegar þú verður næst að vinna.

3:34 PM  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Taka tvö: Kem og kaupi í safnbúðinni þegar þú verður næsta að vinna. Mamma.

3:35 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Forsíða

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com